|
Myndir 
Bloggarar 
|
24.06.2006 14:05:53 / Andrea
Já, við
síðustjórar höfum ákveðið að hætta með þessa síðu.
Blog.central er víst að verða úrellt Neinei, bara gaman að
breyta til. Ég ætla mér líka að gera mér nýja síðu á þarna
bloggar.is... en ég ætla bara að gera hana í lok sumarsins,
ég ætla ekki að vera halda uppi síðu í sumar sem verður
kannski nýtt blogg 2svar í mánuði EF ég væri dugleg En
fréttir!! Núna er nefnilegast orðir asskoti langt
síðan ég hef látið í mér heyra!
*Það voru sem sagt
samræmdu prófin í mai.. Ég tók öll prófin og haldið ekki að kella
náði þeim öllum! kom mér mjög á óvart, því ég er með þeim
svartsýnustu og neikvæðustu manneskjum þegar kemur að prófum, gáfum
og öllu því tengt! Hafði gjörsamlega enga trú á sjálfri mér þarna.
En ég er mjög ánægð með að hafa náð þeim
*Svo var það
útskriftarferð hjá okkur 10. bekk, eða við erum svo fá þannig að
við fórum saman 9.&10. bekkur. Það var geggjað! Vorum í viku,
eða 8 daga reyndar Fórum í tvö tívolí... tvo daga í röð! Svo ég
var gjörsamlega raddlaus næstu daga.. Plús það að ég þurfti
endilega að fá hálsbólgu rétt áður en við fórum út, helvítis
kokkana! Þannig að ég var japlandi á sýklalyfjum alla ferðina. Og
endaði auðvitað á því að smita Elísubet greyið, við tvær vorum
saman í herbergi 6 manna herbergi sko! Hehe.. þannig að það var
ekki þröngt um okkur. En ferðin var geggjuð, fyrir utan að þurfa að
vera frá Einari mínum í heila viku.. það er strembið! En ég hringdi
bara heim úr tíkallasíma, sem var svona 500 kall ísl. á 2 mín.
Helvítis rán!
*En svo sótti ég
um á Framhaldsskólanum á Laugum, ég ætla að fara á Félagsfræðibraut
þó ég viti ekkert hvað mig langar að gera. Ætla allavega að byrja á
því og svo kemur bara í ljós hvað verður um mann. En ég fékk
inngöngu þar inn! Og ennþá betra, þá ætlar kallinn að koma með
mér!! Getið þið trúað því? Ætlar bara að skella sér í skóla með
konunni Ég er geðveikt stolt af honum, Týri var það nú líka þegar
hann heyrði fréttirnar! Sagði honum bara að sækja um sem
skólastjóri á Laugum.. Hehe Svo það er bara planið að fara á
Laugar næsta haust og vera með kallinum mínum í
herbergi;*
*Sjómannaballið!
Það var geggjað þarf ekkert að segja meira um það.. bara rosa
gaman og ekkert vesen Blandaður Kokkteill spilaði auðvitað fyrir
dansleiki..
*En núna er ég sem
sagt í Mosfellsbæ og verð þar í allt sumar. Og er að vinna hér í
Mosfellsbakarí, sem er fínt Er annað hvort að vinna frá 7-1 á
morgnanna eða frá 1-7 eftir hádegi. Svo er það bara allan daginn um
helgar.
En núna næstu
helgi eru Hamingjudagar á Hólmavík, ég er búin að taka mér frí í
vinnunni og ætla skella mér þangað á ball með kokkteil Þeir koma
allir saman! Gömlu kallarnir Það verður stuð.. En heyrirði,
þetta er þá bara meira og minna komið hjá mér bara. Ég ætla skella
mér í sturtu og fara í bíó eða í Fjölskyldugarðinn með Arnóri og
Einari, svo í kvöld er pabbi Einars búinn að bjóða okkur í mat og
gistingu alveg örugglega líka. Þannig að ég er að fara hitta
tengdapabba í fyrsta skiptið híhí... En ég er þá farin;* Bið
að heilsa ykkur elskurnar... megið alveg kvitta svona við síðasta
bloggið. Bæjó ;* 
»
09.06.2006 20:08:51 / Signý
herðu herðu, held bara að þessi síða sé alveg að syngja
sitt síðasta nenni allavega aldrei að blogga hérna, er hvort
eð er með aðra síðu. Svo er andrea greyið ekkert með neitt net.
Þannig að við kannski bara byrjum einhverntímann seinna aftur.
En allavega er þetta mitt síðasta blogg í bili. Bið að heilsa
ykkur=] Takk fyrir mig og bless ;*

Signý^^,
»
21.05.2006 14:00:32 / Signý
»
15.05.2006 17:45:54 / Signý
Tími til að blogga. Já, komiði sæl. Það er alveg ótrúlegt hvað
tíminn flýgur! Mér finnst ég vera nýkomin úr jólafríi en það er
bara strax að koma sumar, skólinn að verða búin sem er náttúrulega bara gott. Meiri segja prófin eru
flest öll búin, ég sem hélt að það myndi vera svona prófvika
en nei þá eru við bara búin að taka einhver próf sem að ég
vissi ekki einu sinni að væru lokapróf ég fylgist greinilega ekki nógu vel með. Mér er búið að
ganga svona ágætlega í þeim, hefði nú samt lagt meira á mig
hefði ég vitað að þetta væru lokaprófin. En svona er þetta
bara, þýðir ekki að kvarta=) Veðrið alltaf jafn gott samt koma svona dagar inn á milli sem það er pínu
kalt, en það er nú bara svona til að kæla mann niður. En vinna
í sumar? hef ekki hugmynd=/ nenni bara alls ekki í
bæjarvinnuna. Ætli ég endi ekki bara á þvi að passa. Heyrðu,
svo er skólaferðalag næsta mánudag
förum í riverafting ekki alveg viss hvernig það er skirfaði
een já, mig hlakkar rosalega til sko, þetta verður örugglega
ýkt gaman
Svo daginn eftir er starfsdagur svo skóli svo aftur einhver
dagur þannig að sú vika verður ekki mikill skóli
allavega
svo erum við búin 31. mai en skólaslitin verða 6.
júni, þessir dagar þarna á milli eru bara eitthvað
starfsdagur og svona skemmtilegt. En ég er þotinn, Bæjó ;*

»
27.04.2006 14:26:08 / Signý
vinur er sá sem þú getur leitað
til
vinur er til að
hlægja með
vinur er sá sem þú leitar ráða
hjá
vinur er sá sem þú
treystir
vinur er sá sem þú tekur mark
á
vinur er sá
sem segir þér
satt
vinur er sá sem þér líður vel
með
vinur er sá sem kann að meta það sama og
þú
vinur er sá sem svíkur þig
ekki
vinu er sá sem verður ekki
afbrýðisamaur
vinur er sá sem styður þig með ráðum og
dáð
Jám, bara að minna ykkur á hvað
vinir eru Nenni ekki að blogga neitt og
var orðin leið á að sjá allltaf sama bloggið.. En nenni ekki
meira, endilega kvittið. Langar að sjá hverjir eru að skoða
;*

SignýLind
;*
»
17.04.2006 16:53:42 / Signý
»
07.04.2006 09:34:27 / Andrea
Hún var fín Loksins tekið eitt Raufarhafnardjamm, það var
kominn tími til! En jú, á föstudagskvöldinu var partý í
Sidduhúsi (eða hjá Örnu réttara sagt) það var stuð..
Gamallt og gott gítarpartý í bland við annað En
Sædís, Friddi, Tinna syss og Tinna Rún komu frá Laugum og
mættu í partý! Alltaf gaman að fá djammara frá Laugum til að
fjölmenna En svo fór restin af helginni meira og
minna í afslöppun bara..
Síðustu daga höfum við verið að undirbúa árshátið. Þemað var
,,Það sem áður var" eða allt upp til ársins 1950, þannig að það var
svona gamall stíll yfir þessu öllu saman. Við 9.&10.
bekkur vorum með tískusýningu og sýndum þá að sjálfsögðu
eldgömul föt! haha djöfull var gaman að klæða sig upp í þetta, ég
verð að setja nokkrar myndir inn fljótlega... Og svo gerðu
strákarnir geðveikt töff myndband sem fjallaði um Ástandið á Ísl. í
gamla daga, þegar hermennirnir stálu íslensku konunum..þið getið
rétt svo ímyndað ykkur hvernig þeir voru hehe... en árshátíðin
gékk bara sæmilega
Svo er það "skemmtilegi" parturinn Gömlu eru að
draga mann suður um páskana!! ooooooo ég er svo ekki að nenna að
dúsa þarna og LÆRA fyrir þessi helv. samræmdu próf já! Nú fell
ég tár - rétt áður en ég leggst í þunglyndi... Ég er búin
að segja að ég ætla ekki að vera þarna allt páskafríið sko!
ohh.. en jæja, ég held ég fari til Ak. núna í dag og
svo beint suður á morgun
Ég er farin... bæjó
»
31.03.2006 18:22:36 / Andrea
....Og ekkert annað Jii.. á ég að
hafa mig í þetta?
Heyriði...Það er gott að frétta af
mér, bæði skemmtilegt og fallegt fólk búið að dekra við mann
og svo drepleiðinlegt fólk tuðandi í manni.. en svona er
þetta bara! Og svo er svona hitt og þetta búið að gerast Um
daginn var til dæmis samskólaball hérna á Rauf (síðasta
samskólaballið okkar Betu ) svo er maður bara off í
framhaldsskóla! ee!?.. hehe, en þetta var fínt ball. Einar kom og
spilaði fyrir okkur, helvíti magnaður strákurinn

Frekar léleg mynd - en
jæja..

Svaka stuð á fólkinu að
sjálfsögðu

Ég og Beta í léttum dans!
hehe.. við erum reyndar þarna á bakvið (þeir sem ekki þekkja
til)
EN
helgina eftir voru haldin áheit, sem gengu út á það að stunda
íþróttir í sólarhring djöfull var maður orðinn pirraður og
þreyttur þegar það fór að líða á nóttina eða um morguninn
sérstaklega! Ég ætla nú að skella nokkrum myndum inn svona
ykkur til skemmtunnar.... en maður sjálfur hefur ekkert
agalega gaman að sjá myglaða smettið á manni, kannski svona seinna
meir þegar minningarnar um geðveikisköstin og skítaköstin á fólkið
(sem var alls ekki áætlunin) -eru í fortíðinni jæja,
djöfull er maður farinn að rugla! Hérna
eru myndir!

Þarna er nú verið að þræta um eitthvað,
ég hef það á tilfinningunni að Donni hafi átt upptökin á því
hehe

óóó elskulegir feðgar!!

Æj hvað maður var orðinn þreyttur
þarna

Svo var þetta kl. 9 um morguninn, ég man það svo
vel því maður var alveg að leka niður og beið eftir að þetta væri
búið svo maður gæti farið undir sæng að sofa ahh...

Svo var kvalið mann með því að taka þessa mynd!
hahah ojj djöfull er maður myglaður!
En síðustu helgi fórum við Elísabet inn á
Akureyri og það var helvíti gaman hjá okkur.. gerðum margt
skemmtilegt. En ég hef engar myndir handa ykkur frá þeirri
helgi (sem betur fer ) hehh.. Og svo núna um helgina
verður stuð - meira stuð Það á sko að taka
Raufarhafnardjamm.. það hefur ekki verið gert lengi!
En komið gott í bili - bið að
heilsa ykkur og góða helgi!
àAnDreA
»
22.03.2006 19:20:41 / Signý
hæhæhæhæhæ. (:
Iss,
ég er ekki alveg að standa mig í þessu. Enda ekki það besta sem ég
geri, ég geri þetta bara þegar ég nenni En vikan, öss hún er
gjörsamlega búin að fljúga! Það er strax komin miðvikudagur. Gott
mál. En hvað um það. Það var árshátíð í gær. Sem var jú alveg
ágæt bara, ekki meira en það. Skemmtiatriðin voru samt geðveik, eða
allavega það sem ég sá, sérstaklega dansinn hjá snædísi og þeim,
shit. Geðveikur. En já, ég, móna og dagný hittumst heima hjá mónu
og gerðum okkur tilbúnar þar. Fórum svo upp í skóla til að fara í
limmósíu þetta var geðveikt, það er ekkert smá flott inn í
þessu Rúntuðum með henni í klukkutíma, fórum svo á ballið. Við
vorum eitthvað um 17. En þegar við komum vorum við orðnar
alltof seinar í eitthvað atriði sem við áttum að fara að sýna en
það reddaðist og þetta gekk bara mjög vel allt saman. Svo þegar
þetta var búið fór ég bara heim að sofa.

Vaknaði að vana í skólann, en svaf
yfir mig og missti af strætó. Þannig að ég kom aðeins seint í
íslensku tíma, eins og það er alltaf gaman í þeim. neplat En
heyriði jaaá, ég fór í fermingu um helgina hjá herði, fór samt bara
í veisluna, frétti ég að einhver strákur ældi á prestinn, greyið
strákurinn. Kom í DV og læti. Já, það er gaman að þessu. Svo
er ég að fara i aðra fermingarveislu á sunnudaginn og svo aftur
sunnudaginn eftir hinn sunnudaginn, þið skiljið endalausar
fermingar. Man nú samt þegar ég fermdist, það er nú ekki langt
síðan bara í fyrra. Já, það var mjög gaman væri alveg til í að
fermast aftur. En jam, komið gott í bili .. Bæjó :*
Signý^
»
12.03.2006 20:09:01 / Signý
Halló Jáa, þið
eruð fersk, ekki satt? ég er það allavega ..
Já, hehe sædís það er satt hjá þér, við erum
helvíti lélegar í blogginu! öss, við verðum að fara að gera
eitthvað í þessu þetta gengur ekki. En já, ég ætla allaveg að
blogga smá núna Þessi helgi var jájá, alveg ágæt Fór á
hljómsveitarball, það var jáa, ekkert spes! Svo eftir það fórum ég
& snædís og leigðum okkur myndir, ice princess & how to
lose a guy in 10 days ohh, elska hana. En já, við horfðum bara á
ice princess eða ég horfði rétt á byrjunina og svo steinsofnaði
ég þannig að þegar myndin var búin fór ég bara heim.
Vaknaði um 12 leytið, fór í ljós og svo bara heim í
tölvuna. Svo í gærkvöldi var ég bara að passa fyrir
brynhildi. Svo í dag fór ég til snædísar Það er náttla alltaf
jafn gaman með henni, haha hlæ endalaust þegar ég er með henni!
vorum bara að hanga í tölvu og horfa á allskonar myndbönd, djöfull
er þetta fyndið! ég verð að setja link hérna á eitt, við misstum
okkur yfir þessu sko! Þetta er baraa fyndið! En heyriði, þetta
verður ekki lengra í bili, ég reyni að koma með annað blogg fljótt
aftur aalveg tilganslasut að vera með síðu ef maður bloggar
aldrei, er það ekki? jújú mikið rétt. en já, Bæjó :*
http://www.b2.is/?sida=tengill&id=149991
»
03.03.2006 12:02:39 / Andrea
»
21.02.2006 16:02:12 / Signý
Hæhæ jæja, er ekki komin
tími á smá blogg? Jú, ég held það ekkert merkilegt svosem búið
að gerast hjá mér sl. daga. En í gær & dag voru svona
þemadagar, þemað var vatn. Vorum að gera landakort úr mósaík,
m&m, poppi og einhverju fleira, rosa gaman Hefði ekkert
verið á móti því hafa þessa þemadaga bara alla vikuna. Ekkert að
læra En um helgina gerði ég eiginlega ekki neitt, bara
óskupróleg helgi sko=] Fór samt í bíó með snædísi, á Cheaper by
the dozen 2 hún er fín. Hægt að hlægja aðeins af henni
sko.

Svo veit ég ekki meira hvað
ég á að segja ykkur. Nema að alma er víst flutt til okkar, það er
mjög gaman sko en bara þangað til að hún finnur sér íbúð. Svo eru
amma Signý & Afi Þorgeir þið vitið nú öll hver þau eru En já,
þau eru að koma frá kanarí í dag, og ætla að stoppa eitthvað hérna
hjá okkur. Búin að vera í heilar 4 vikur, mér finnst eins og þau
séu ný farinn, öss! þetta er fljótt að líða já. En heyrðu já, hún
Henný á afmæli í dag, til hamingju með það:** en heyrðu, er farinn.
Bless :*
SignýLind^
»
14.02.2006 20:18:52 / Andrea
Gleðilegan valentínusardag allir 
- Njótið dagsins sætu -
Kv. Andrea í rómó
fíling
Ætlaði að láta fylgja með sæta mynd af okkur
systrum á þorrablótinu 
»
14.02.2006 17:25:51 / Signý
»
08.02.2006 18:09:11 / Signý
Halló
Var að gera einhvern leik hérna fyrir neðan, og ákvað svo bara
að blogga smá. En í dag var bara óskupvenjulegur skóladagur, ekkert
spes. Búin um eitt leytið, fór með snædísi niðrí bæ, að kaupa
stílabækur! hehe. Gaman að því kíktum svo aðeins í gallery. Svo
fór snædís á æfingu, þá fór ég bara heim til mín að læra! það er
náttla alltaf jafn mikið fjör en hey, gulla átti afmæli í gær,
varð 16 ára, til hamingju með það frænka:*
   
En vitiði ég hef óskup fátt að segja sko, langaði bara að
blogga, nennti ekki að horfa á þennann leim leik alltaf þegar ég
kom inn á síðunna en er farinn, Bæ
SignýLind..
»
Síður: 1 2 3 ... 11
|
|